Svo eru það börnin
20.04.2006 21:58:07 / Lalaland

ertu þá farinn, ertu þá farinn frá mér ? hvar ertu núna ......

Jæja þá er ég flutt héðan
takk fyrir allt :) sjáumst á http://gubbytrina.blogspot.com


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 10:57:28 / Lalaland

Og það var stelpa :)

Þá er það komið á hreint ég er orðin móðursystir :) hún Hilda mín eignaðist selpu 13.apríl. litla kríli var 13 merkur og 50cm
hún er algört krútt :D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:D:haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:
já var ég búin að segja hvað ég er stolt af stóru systur minni :):haha:

og hérna er hún Rannveig María Guðnadóttir

» 6 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 22:25:37 / Lalaland

MYNDIR !!!!!!!!!!!

Myndir eru að hlaðast inn.... loksins segja sumir, þetta er búið að vera langt og stangt ferli en þetta er allt að koma..

hægt er að finna þær undir myndinar mínar hérna fyrir neðan eða á http://public.fotki.com/trinan/ 

kveðja

Katrín Hólm :D

p.s kommentið aparnir ykkar ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 00:17:18 / Lalaland

síðasta fermingin :)

    jæja þá er búið að ferma yngsta bróðir minn. allt gekk mjög vel, við fjölskyldan vorum skemmtilegust í kirkjunni... held að við höfum hlegið frá því við komum í kirkjuna og þar til við fórum út. allt var svona frábært. það vantaði bara kórinn sem var þegar Hörður var fermdur...það var svona ekta sveita kirkjukór allir að reyna að syngja betur og hærra en manneskjan við hliðina :) bara gaman. greyið Hilda gat ekki verið með okkur í dag þar sem hún gæti fætt barnið hvenær sem er :) þannig að þau tóku ekki sénsinn á því að hún myndi fæða barnið upp á miðri Holtavörðuheiði, það væri nú ekki skemmtilegt. en við erum búin að vera í beinu símasambandi við hana í allan dag :haha:
Strákurinn fékk ekkert smá mikið af peningum í fermingja gjöf, hefði ekkert á móti því að fá smá af því ;) en minn tími er víst liðinn í þeim efnum.
annars er ekkert að frétta.... sit bara í norðurgötunni í náttfötunum mínum og er að slappa af eftir langan og strangan dag. jæja ég ætla að fara að sofa... get nefnilega sofið út á morgun :haha:
jæja þá segji ég bara bæ í bili og endilega kvittið.... kommon það er ekki flókið, þó að það sé svona staðfestingarkóði... ok annars er mér að mæta :evil: og það viljið þið ekki, ég get verið allsvakaleg með veskið mitt með fleignum í og svo læt ég hnefan fylgja ;)
jæja þá er komið
verið sæl og lifið heil

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 21:56:18 / Lalaland

Power ?????

     

Hvað hafa þessir menn umfram hina sem eru sálfræðingar og prestar.
Þeir eru með mörg hundruð "fylgis menn" sem hlusta á allt sem þeir segja. Ef þeir segja hoppið, þá munu margir hoppa. En svo eru að vísu margir sem myndu hnussa og labba í burtu. hvað er það sem fær fólk til að fylgja einum/fleirum í einu og öllu. Er það að leyta að einhverju/einhverjum til að segja þeim hvernig á að lifa lífinu ? maður spyr sig. eru þetta bara hermikrákur ? eða hvað. lifa lífinu í endalausum þrautakóngi.
Ef ég gerðist sálfræðingur eða prestur ætli ég hefði þá þessa hæfileika til að fá alla til að trúa öllu sem ég segði. svo var líka annað sem ég var að spá, það eru yfirleytt karlar sem eru fremstir í flokki í þessum efnum. Þannig að ég verð víst bara að snú mér að einhverjum til að herma eftir... held ég.
en þetta er bara smá pæling......hummmm

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 22:06:11 / Lalaland

Veislur og aftur veislur

Hún Elva á afmæli í dag..... ég vil bara óska henni til hamingju með daginn
Hún Björg á afmælo á morgun og ég vil óska henni til hamingju með daginn
Hann Hörður litli bróðir minn á afmæli ekki á morgun heldur hinn og ég vil óska honum til hamingju með daginn.

vá þetta er svakalegt... svo er það Bára næst, svo ferming hjá yngsta bróður mínum og svo má ekki gleyma henni Guðnýju. þetta eru apríl afmælin og veislur... hey já og ekki má gleyma því að systir mín verður mamma í apríl líka :)


Þetta eru magnaðir tímar framundan..... þetta er GEGGJAÐ :haha:
p.s. svo má ekki gleyma að mér var boðið í fermingu hjá frænku minni

ok það eru ekki svo margir sem koma hingað inn á hverjum degi...hvernig væri ef þessar fáu manneskjur myndu kvitta fyrir sig..... bara smá pæling

» 9 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 17:28:42 / Lalaland

hverjum hefði dottið það í hug ....

Fyrir ári síðan hverjum hefði dottið það í hug að ég:
  • myndi vakna fyrir kl 7
  • búa í reykjavík.... Breiðholtinu ;)
  • skríða á gólfinu í vinnunni með ímyndaða óvini á eftir mér
  • væri í 2 skemmtinefndum
  • væri komin með rautt krullað hár
  • væri búin að léttast aðeins ;) hehehe
  • fengi ca. 14 knús á hverjum morgni :haha:
  • færi að minsta kost 2 í strætó á dag .....vúbbí
  • væri syngjandi alla daga og aðra hverja helgi ;)
það er ekkert smá sem getur gerst á einu ári. susssss..... það verður fróðlegt að vita hvað mun gersast á þessu ári :haha:

en jæja ég er þá farin....það er staffaparty á leikskólanum í kvöld, maður þarf að setja upp andlitið
KaTrÍn HóLm
p.s ég er í nammibanni, fékk það staðfest um daginn. það er betra að vita svona lagað
p.s.s en ég fékk samt eina litla kökusneið (það voru 2 börn sem áttu afmæli...ég varð)

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 19:19:13 / Lalaland

Loksins....

Hvað haldið þið.... ég skrapp á tónleika á föstudaginn. Niðri á NASA,þetta var svaka skemmtun... hver hljómsveitin annari betri (nema kannski sú síðasta ;)) svo var maður bara að vinna um helgina, kvöldvaktir með þeim afleiðingum að ég svaf næstum yfir mig í morgun urrr:evil:.... heyrði ekki einu sinni í klukkunni.
Svo var ég víst að byrja í nammibindindi, held ég :S
Ég er enn að bíða eftir svari frá skólanum í Dk... veit ekki hvenær ég fær svar.
svo er ég að fara í staffaparty á föstudaginn hjá henni Guðfinnu... þetta verður geggjað stuð :haha:
Svo var ég að stofna skemmtinefnd í hinni vinnunni... það vantaði smá skemmtun þar... er ekki lengi að koma mér í skemmtinefndir, enda er ég líka svona æðislega skemmtileg hehehe :haha:

ætla ekki að hafa þetta lengra í bili
Kata


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 20:26:28 / Lalaland

föstudagur og föndur

Hvað skal gera á föstudagskvöldi ? hef ekkert að gera, nema horfa á one tree hill ;)
Annar er ekkert merkilegt að frétta. geri ekkert annað en að pæla í því sem ég ætla að gera í haust. möguleikarnir eru margir, kannski of margir. svo koma svona pælingar upp í hugan, hvað ef ég kemst ekki inn í neinn skóla. hvað á maður þá að gera ?? það væri ömurlegt. veit að ég gæti verið áfram á leikskólanum en er ekki viss um að ég gæti unnið á leikskóla lengur sem ófaglærður starfsmaður.
gaman að segja frá því að ég er í nákvæmlega sömu sporum og ég var í síðasta vor og sumar. nema það að ég veit hvar ég mun búa í sumar, Takk Fjóla :haha:
alltaf þegar maður ætlar að blogga eitthvað merkilegt og gáfulegt...gerist ekki neitt

en ef að þið hafið einhverjar föndur hugmyndir sem ég get notað á leikskólanum láttið mig þá endilega vita. samt ekkert of flókið er með 2-3 ára krakka :)

       Katarína

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 18:52:08 / Lalaland

Það er aldeilis

Hjá kaupmanni rétt við búðarborðið

svo brosfögur horfði Kata:

"ég ætla bara að kaupa tölvu

fyrir peningana mína"


 

og hvaða gerð viltu ljúfan? sagðan

fyrir litlu tölvuna þína?

hvað auðvitað Toshiba, en ekki makka

með ákafa svaraði Kata.


 

Hann brosandi fór og fann allt til

hvað kostar það ? spurði Kata

"einn koss" hann svaraði , kostar tölvan

handa þér.


 

Í búðinni glumdri við hræðsluhlátur

er reiðilega svaraði Kata:

hún mamma mín kemur í bæinn bráðum

og sparkar í rassinn á þér .....


Já já ég veit að þetta rímar ekki og það eru ekki stuðlar og höfuðstafir í þessu, en vitiði hvað ??? mér er sama. þetta er skárra en fullt af því sem ég hef séð. þetta var samt ekki svona þegar ég keypti tölvuna. engin svona dramatík... ;)

en  alla vega þá hvet ég alla til að fara inn á síðuna hennar Hófíar (sem ég kalla Hífí ;)) og taka þátt í skoðanakönnunni sem þar er. mæli með henni :haha:

þá er að fara að hætta þessari vitleysu

Katarína kveður......


 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 13:06:37 / Lalaland

hvað varð um vikuna ???

þá er maður orðin 22 ára.

að mínu mati heppnaðist afmælið vel, fólk fór allavega ekki grenjandi út eða sleppti að mæta ;) en eins og þið hafið kannski heyrt þá var bleikt þema´um kvöldið og er Bára sigurvegarinn í þeim efnum, bleiki kjóllinn var glæsilegur :haha: Gullfisknum mínum heilsast vel, syndir og syndir uma allt... alveg frábært líf. svo núna þegar ég kem heim á daginn þá skelli maður á sig strápilsi og fer að dansa "houla" (eða hvernig sem það er skrifað ;) ) Bjögga gaf mér nefnilega svona handbók hvernig er hægt að dansa svoleiðis dansa. ég er að verða geggjað góð.... en ég nenni ekki að skrifa meira um þetta núna..... ´það kemur seinna

hún guðný er að koma um helgina.... hef ekki hitt hana síðan 18.júní.... svolítið langt síðan.

en jæja bið að heilsa

Katarína :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 17:46:07 / Lalaland

Loksins

    Þetta er svakalegt.....
skrapp norður um helgina og kom öllum á óvart, ótrúlegt stuð :)
er ekki alveg að nenna að halda upp á afmælið mitt... segji ég núna en verð að rifna úr spenningi eftir 2 daga ( er það ekki alltaf svoleiðis)
en jæja heyrumst siðar

» 7 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 13:41:43 / Lalaland

uss ekki segja frá.... sssuuuusss

jæja ´það er komið á hreint.... Bleikt þema þann 17.feb

vúbbí :D

er að stelast að skrifa hérna í vinnunni, þar sem netið er með vesen heima :cry: það tekur á taugarnar

jæja nenni ekki að skrifa meira í bili

lifið heil

Katrín


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 18:57:45 / Lalaland

Ein umsókn í bígerð

Jæja, ég ákvað að hætta að velta mér uppúr þessu og bara sækja um (takk Hilda fyrir sparkið). Ég sótti um Hótelstjórnun í DK (kemur á óvart) og svo er bara að bíða og sjá. Skipti kannski nokkrum sinnum um skoðun en það er aldrei að vita nema ég endi þar :) Alla vega hægt að prófa að sækja um.

Ég fór svo upp í Orkuveitu á laugardaginn í verðlaunaafhendingu með Möggu, Fjólu og Dúnu. Þar var hvítvín í boði ásamt fancy súkkulaði og jarðaberjum ;) ekki amalegt.

Um helgina var Friendsmaraþon...good times, good times. Svo mikið er víst að Chandler dansinn verður tekinn 17.febrúar. Hófí tók hann á laugardagskvöldið edrú þannig að þið getið ímyndað ykkur hvernig hún verður eftir 5 tequilaskot og bollu :haha: Svo er aldrei að vita nema ég joini hana í dansinum. Tökum kannski Napoleon Dynamite dansinn líka...úff við verðum að fara að æfa okkur. Ætli þetta verði tveggja manna partý??? Fólki er velkomið að joina.

ef fólk er með hugmyndir að bollu fyrir 17.feb þá endilega komið með hugmyndir...eina skilyrðið er að í bollunni má EKKI vera kók....helgispjöll.

annars bíðið þið bara spennt eftir febrúar...þemað er að myndast ;)

Katarína

» 17 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 20:07:09 / Lalaland

HJÁLP!!!!!!!!

Nú er það slæmt..... er í meiri tilvistarkreppu núna en þegar ég kláraði í vor. þetta er slæmt...
einhverjar uppástungur ?????

» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7